Þá er komið að skemmtilegu föndurkvöldi í samstarfi við listamiðstöðina Höfuðstöðina.
ATHUGIÐ að húsið opnar kl 19:00 að þessu sinni.
Á opnu húsi miðvikudaginn 11. nóvember mun koma til okkar hún Lilja Hrönn Baldursdóttir frá lista og menningarhúsinu Höfuðstöðinni, en Fornbílaklúbburinn hefur með viðburði þessum hafið mjög áhugavert samstarf við Höfuðstöðina.
Lilja mun kom með, sýna og kynna fyrir okkur timbur fornbílamódel og fornbílatengdar föndurvörur sem og málningu og fylgihluti sem hægt er að nota til að mála bílana og fleira með eins og maður vill það hafa. Bílarning verða til sölu og það verður boðið upp á það að fólk geti komið á staðinn og fengið að mála bílinn þar, en einnig er hægt að kaupa liti til að föndra við þetta heima hjá sér.
Bílamódelin eru öll smíðuð á Íslandi og föndurvörurnar eru líka allar gerðar og málningasettin sett saman og pakkað hér á landi og eru þetta því alveg séríslenskar og mjög áhugaverðar listvörur.
Þetta tilvalið kvöld til að taka með sér börn og barnabörn og gefa þeim tækifæri á að koma, kynna sér áhugamálið okkar og mála sinn bíl, eða jafnvel ískápasegul. Bílarnir geta einnig verið skemmtilegar jólagjafir, tækifærisgjafir eða bara fágætir gripir fyrir okkur bílaáhugafólkið að eiga.
Nánar má kynna sér starfsemi Höfuðstöðverinnar á heimasíðu þeirra. Höfuðstöðin – Höfuðstöð Chromo Sapiens
Ekki missa af þessum skemmtilega viðburði.
P.s. Þess má geta að Lilja er barnabarn Þorsteins heitinns Baldurssonar sem var áberandi í félagi í Fornbílaklúbbi Íslands á árdögum klúbbsins.