Það verður opið hús hjá okkur í Ögurhvarfi 21. október. Húsið opnar kl 20:00
Á þessu kvöldi ætlum við að sýna ykkur á skjánum hjá okkur ljósmyndir sem teknar voru í september s.l. í Osló í Noregi á árlegri bílasýningu og markaði sem haldin er tvisvar á ári, vor og haust, af fornbílafélögum í Osló. Einnig sýnum við nokkrar mjög svo skemmtilegar myndir úr Norsk Folkemuseum sem eiginlega svona einskonar ,,Árbæjarsafn“ þeirra norðmanna.
Hefðbundnar kaffiveitingar verða í boði. Ekki missa af þessum stórskemmtilegu myndum.
Endilega fjölmennum og eigum gott kvöld með félögunum.
Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stjórnin