Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00. 

Á þessu fyrsta bíókvöldi okkar þennan veturinn munum við taka til sýningar stórmyndina The Untouchables sem gerð var árið 1987 og skartar stórleikurum á borð við Kevin Costner, Charles Martin Smith, Robert De Niro, Andy García og Sean Connery, en hann fékk Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni. 

Myndin gerist árið 1930 og fjallar í stuttu máli um alríkislögreglumanninn Eliot Ness sem leikin er af Kevin Costner, en hann setur saman hópin ,,Untouchables“ til að eiga í baráttu við að koma stórglæpamanninum Al Capone, leiknum af Robert De Niro, bak við lás og slá. 

Leikmynd myndarinnar er einstök og mikið af flottum og mjög gömlum bílum má sjá í myndinni. Þetta er stórkostleg mynd sem hefur fengið mikið lof gagnrínenda í gegnum árin og unnið til fjölda verðlauna. Leikarar myndarinnar fara með stórleik og ná að túlka söguna og tíðarandann á stórkostlegan hátt. 

Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 120  mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir. 

Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi.

Stikla myndarinnar: The Untouchables (1987) Trailer #1 | Movieclips Classic Trailers – YouTube

Myndin er sýnd hjá okkur með íslenskum texta. 

Stjórnin