Módelasýning í Ögurhvarfi.
Sunnudaginn 25. október 2026 mun IPMS Iceland, sem er Alþjóðlega plastmódel félagið vera með sýningu í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi 2.
Þar verða til sýnis módel af bílum, flugvélum, herfaratækjum, skipum og fígúrum svo eitthvað sé nefnt.
Sýningin verður opin frá kl 12:00 til kl 17:00.
Aðgangseyrir að sýningunni er 1.500 kr. og frítt er fyrir börn 12 ára og yngri, Aðgangseyrir að sýningunni er til styrktar IPMS sem stendur fyrir og skipuleggur hana.
Endilega mætum á þennan viðburð því þessar sýningar hafa undanfarin ár verið ákaflega skemmtilegar og athygglisverðar, en sýningin er nú í fyrsta sinn haldin í samstarfi við Fornbílaklúbbinn í félagsheimilinu okkar.