Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00. 

Á þessu öðru bíókvöldi okkar þennan veturinn munum við taka til sýningar hina 40 ára grínmynd Ferris Buller’s Day Off sem gerð var árið 1986 með Matthew Broderick í aðalhlutverki. 

Myndinn fjallar um Ferris Buller sem nennir ekki í skólann og tekur sér því með klækjum veikindadag í skólanum og fer á rúntinn með vinum sínum á forlátum og sjaldgæfum Ferrari bíl, á meðan skólastjórinn í skólanum hans reynir að komast að hinu sanna um veikindi Ferris og hvort ekki sé örugglega maðkur í mysunni hvað þau varðar. 

Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 103  mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir. 

Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi.

Stikla myndarinnar: Ferris Bueller’s Day Off (1986) Official Trailer – Matthew Broderick Movie

Myndin er sýnd hjá okkur með íslenskum texta. 

Stjórnin