Já þá er komið að kvöldrúnti og kaffispjalli, miðvikudaginn 5. ágúst, sem hefst við Perluna.

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á neðra palninu við Perluna í Öskjuhlíð.

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr þar sem leið okkar liggur svo uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma upp á kaffiveitingar. 

Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Opið verður í félagsheimilinu frá kl 20:00. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með.

Stjórnin