Kjörnefnd óskar eftir framboðum til stjórnar og minnir einnig á að hafi félagar tillögur um lagabreytingar þá þarf að skila slíku inn skriflega til kjörnefndar mánuði fyrir aðalfund sem haldinn verður miðvikudagskvöldið 25. maí 2022.
 
Kosið verður um 3 sæti stjórnarmanna til tveggja ára og 2 varamenn til eins árs.
 
Frestur til framboðs rennur út 25. apríl 2022.
Tilkynningum um framboð eða tillögum um lagabreytingar skal skila skriflega til formanns kjörnefndar á tölvupóstfangið gunnarthora@simnet.is