Nú er vetrardagskráin að hefjast og komið að opnu húsi þar sem verður fyrirlestur um eldsneyti og olíur. Húsið opnar klukka 20:00.

Á þessu kvöldi munum við fá gest frá Diapró ehf sem er umboðsaðili Aspen eldsnytis á Íslandi. Farið verður yfir það hvað er hægt að gera til að verja og halda í fullkomnu lagi eldsneytiskerfum gamalla bíla, sérstaklega þegar komið er að því að geyma fornökutæki yfir veturinn. 

Að því loknu mun formaður okkar Rúnar Sigurjónsson fara í gegnum olíumálin og leiðbeina okkur um val á olíum og hvernig sé best að þjónusta gömul ökutæki til að varðveita áreiðanleika þeirra og á sama tíma stuðla að notkunaránægju slíkra tækja. 

Missum ekki af þessum einstaka viðburði. 

Að sjálfsögðu verður kaffi og kaffiveitingar. 

Allt bíla- og forntækjaáhugafólk velkomið. 

Stjórnin.