Já þá er komið að kvöldrúnti og heimsókn á kaffihús, miðvikudaginn 26. ágúst, sem hefst við Eiðistorg.

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á planinu við Hagkaup á Eiðistorgi.

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr um Vesturbæ og Seltjarnarnes þaðan sem leið okkar liggur svo út á Granda, en ætlunin er að við fáum okkur hressingu að þessu sinni á Kaffivagninum.. 

Lokað verður því þetta kvöld í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með.

Stjórnin