Já þá er komið að kvöldrúnti,  miðvikudaginn 15. júlí, sem hefst við Háskólann í Reykjavík

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á planinu hjá HR (við Menntaveg 1 við Nauthólsvík). 

Við munum við HR hitta á félaga úr Mercedes-Benz klúbbnum sem efna til hittings með okkur að þessu sinni. 

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr, en leið okkar liggur austur að Geirlandi við Suðurlandsveg (rétt austur fyrir Hólmsheiði í landi Kópavogs) en þar búa Einar J Gíslason og hans frú hún Dyljá Eyjólfsdóttir sem ætla að taka á móti okkur og leyfa okkur að fá að skoða eitt og annað athygglisvert sem er að skoða þar og bjóða okkur upp á kaffiveitingar. 

ATH.. Lokað verður í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega bíltúr.  

Stjórnin