Kvennarúntur miðvikudaginn 12. ágúst hefst við Fiskislóð 26.
Þá er komið að kvennarúnti þar sem að við hvetjum allar konur til að koma og keyra fornbíla.
Þetta árið ætlum við að byrja kvennarúntinn á Fiskislóð 26. Mæting er kl 19:00, en þar er verslun sem heitir Gyllti kötturinn. Þar verður opið fyrir okkur milli kl 19:00 – 20:00 og það verða ýmis tilboð í gangi hjá þeim.
Klukkan 20:00 verður ekið þaðan út Fiskislóð yfir á Ánanaust, Hringbraut, Miklabraut, upp á Vesturlandsveg og þaðan á Suðurlandsveg, yfir á Breiðholtssbraut, upp á nýju brúnna og þannig nýju leiðina í Ögurhvarf. Þar verður tekið á móti hópnum með kökuhlaðborði.
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega og hámenningarlega viðburð.
Stjórnin
Umsjónaraðilar ferðar eru: Stefanía Hinriksdóttir og Margrét Helga Aðalsteinsdóttir