Aðalfundur Fornbílaklúbbs Íslands 2021
 
Aðalfundur Fornbílaklúbbs Íslands verður haldinn mánudagskvöldið 31. maí í Digraneskirkju kl 20:00.
 
 
Dagskrá:
1. Fundur settur, skipan fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar og nefnda
3. Ársreikningur 2020 lagður fram og borinn upp til samþykktar
4. Stjórnarkjör
  a) Kosning formanns til 2ja ára
  b) Kosning þriggja stjórnarmanna til 2ja ára
  c) Kosning þriggja stjórnarmanna til eins árs
  d) Kosning tveggja varamanna til eins árs
5. Kosning skoðunarmanna reikninga 
6. Kjörnefnd kynnir úrslit kosninga
7. Árgjald, umræður og ákvarðanataka
8. Önnur mál
9. Fundargerð lesin
10. Fundi slitið
 
Húsið opnar kl. 19.30 og hefst fundurinn kl. 20.00 og eru félagar hvattir til að koma akandi á fornbílum. Aðgangur takmarkast við þá sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2021 og hafa þeir einir atkvæðisrétt sem greitt hafa þremur vikum fyrir fundinn. Munið félagsskírteinin.
Mætingarstig er eingöngu fyrir mætingu bíla eldri en 25 ára.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Aa