Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00. 

Á þessu þriðja bíókvöldi okkar þennan veturinn munum við taka til sýningar mynd sem ekki er af lakara taginu, enga aðra en Dirty Harry með Clint Eastwood í aðalhlutverki, en mynin er frá árinu 1971. 

Myndinn er alvöru löggukrimmi síns tíma sem svíkur engann og er með fullt af hasar, fjöri og flottum atriðum sem engin má missa af. Þess má geta að í myndinni er að sjálfsögðu fullt af flottum bílum frá þeim tíma er myndin er gerð. 

Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 99  mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir. 

Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi.

Stikla myndarinnar: „Dirty Harry“ | Trailer | Berlinale 2025

Myndin er sýnd hjá okkur með íslenskum texta. 

Stjórnin