Við, ásamt Bifreiðakúbbi Suðurlands, ætlum að taka þátt í bæjarhátíðinni Kótilettan á Selfossi.

Mæting er í félagsheimilinu í Ögurhvarfi kl 11:00 en skömmu síðar förum við þaðan í hópakstri á Selfoss og leggjum bílunum við Fjölbrautarskólann á Selfossi á meðan við förum og njótum þess sem hátíðin hefur upp á að bjóða.

Áætlað er að stilla bílum upp á planinu við FSU milli 12:00 og 13:00 og er einnig í boði að mæta bara beint þangað fyrir þá sem það vilja eða koma úr annari átt en af höfuðborgarsvæðinu. Uppstilling á planinu er í höndum samstarfsaðilanna okkar hjá Bifreiðaklúbbi Suðurlands sem munu taka vel á móti okkur.

Viðvera við FSU er til klukkan 16:00, en öllum er frjálst að vera lengur, enda nóg við að vera í bænum langt fram eftir kvöldi fyrir þá sem vilja vera lengur. Bílarnir mega standa lengur við skólann ef þurfa þykir. 

Endilega fjölmennum í þessa skemmtilegu dagsferð og njótum okkar á Kótilettunni á Selfossi. 

Allt bílaáhugafólk er velkomið að koma með.  

Dagskrá hátíðarinnar má finna hérna: Kótelettan 2026 – BBQ & MUSIC FESTIVAL

Stjórnin