Já nú er vorið komið og við byrjum á þéttri dagskrá næstu daga. 

  1. Þriðjudaginn 12. maí verður aukaopnun milli klukkan 20:00 og 21:30 í bílgeymslum okkar að Esjumelum, og er það gert vegna skoðunardagsins sem að þessu sinni er 16. maí og er auglýstur hér neðar. 
  2. Miðvikudaginn 13. maí er svo síðasta rabbkvöld vetrarinns í Ögurhvarfi  og opnar húsið kl 20:00. Við munum sennilega sýna eitthvað skemmtilegt á skjanum að þessu sinni. 
  3. Fimmtudaginn 14. maí, sem er uppstigningardagur, erum við svo að fara að endurvekja Bílamessuna sem var vinsæl hér fyrir nokkrum árum. Hún verður að þessu sinni haldin í Seltjarnarnesskirkju og hefst messan stundvíslega klukkan 14:00
  4. Laugardaginn 16. maí er svo komið að skoðunardeginum okkar í samstarfi við Frumherja í Dalshrauni í Hafnarfirði og verður þar boðið upp á skoðun fyrir 5.900,- krónur og hefst hún klukkan 9:00 um morguninn. 
  5. Miðvikudaginn 20. maí er svo aðalfundur klúbbsins haldinn í Ögurhvarfi og húsið klukkan 18:30 þar sem við byrjum á því að bjóða upp á veitingar, en sjálfur fundurinn hefst kl 20:00.

Gott í bili og meira síðar.

Eins og sjá má byrjum við á þéttri dagskrá og vonum að allir sjái sér fært að mæta á sem flesta að viðburðum okkar í sumar. Okkur hlakkar til að sjá ykkur öll. 

Stjórnin