Árleg 17 júní sýning Fornbílaklúbbsins mun fara fram á Árbæjarsafni laugardaginn 17. júní.
Við ætlum að hittast klukkan 11:30 við Fjarðarkaup í Hafnarfirði, en þaðan verður ekið í hópakstri.
Við munum semsagt aka í hóp fyrirfram ákvarðaða leið að Árbæjarsafninu og verður bílum stillt þar upp til sýningar.
Áætlað er að við munum aka inn á sýningarsvæðið á bilinu 12:45-13:00.
Óskað er eftir að viðvera ökutækja á sýningarstaðnum sé til klukkan 16:00 eða sem næst því og kostur er.
Sýningin verður auglýst sérstaklega á Facebook og við vonumst því til að sjá sem allra flesta.
Endilega bjóðum sem flestum á þennan viðburð. https://www.facebook.com/events/652520299650979?ref=newsfeed
Stjórnin.