Við ætlum að efna til góugleði þann 29. mars 2025 og skráning er hafin. ATH. framlengdur skráningarfrestur.
Vegna þess hvað það var gaman hjá okkur fyrra höfum við ákveðið um að endurtaka Góugleði Fornbílaklúbbsins. Við munum halda þetta í félagsheimilinu okkar að Ögurhvarfi 2 laugardaginn 29. mars n.k.
Búið er að panta á staðinn meistarakokkana sem komu í fyrra og þetta árið koma þeir með heilgrilluð lambalæri og grillaðar nautalundir sem og sitt rómaða meðlæti og slá upp tvírétta hlaðborði.
Tónlistarmennirnir sem komu og spiluðu fyrir okkur í fyrra hafa verið endurráðnir og stefnir því í fjörugt og skemmtilegt kvöld hjá okkur.
Verð fyrir hvern félaga er 6.500,- kr og getur hver félagi tekið með sér einn gest á sama verði, hvort sem um ræðir maka eða aðila úr vinahópi eða fjölskyldu. Fólk sem ekki eru í klúbbnum en langar að koma á gleðina getur það, en þá er verðið 8.900,- kr á gest.
Þeir sem hafa áhuga er bent á að senda okkur tölvupóst hið snarasta merktan ,,Góugleði“ á formadur@fornbill.is eða hringa í síma félagsins sem er 895-8195 fyrir kl 22:00 sunnudaginn 23. mars