Rúntur Miðvikudag
Mæting kl 19.30 á planinu fyrir framan Össur uppi á Grjóthálsi 5. Lagt af stað þaðan kl 20.00, ekið í átt að Öskju, beygt niður til vinstri undir Vesturlandsveginn, beygt upp til vinstri slaufuna sem liggur inn á Vesturlandsveg. Beygt til hægri inn á Sæbraut við Elliðaár. Beygt til hægri niður Holtaveg og strax til vinstri inn Vatnagarða á móts við Tékkland, ekið út Vatnagarða, beygt til hægri niður Sundagarða og aftur til vinstri út Klettagarða, beygt til hægri inn á Sæbraut, ekið sem leið liggur fram hjá Hörpu, beygt til hægri út Geirsgötu og að Hringbraut, beygt til vinstri út Hringbraut, ekið upp Miklubraut, beygt til hægri niður á Breiðholtsbraut. Beygt til hægri út af Breiðholtsbraut á móts við Byko, síðan til vinstri yfir brúna og upp brekkuna hjá Breiðholtskirkju. Ekið upp brekkuna í átt að Elliðaám, beygt til hægri inn á Vatnsendahvarf og beygt strax til vinstri niður Ögurhvarf og endað við félagsheimili Fornbílaklúbbsins að Ögurhvarfi.