Mæting kl 19.30 á planinu við Húsasmiðjuna í Grafarholtinu. Lagt af stað þaðan kl 20.00.

Ekið í átt að Öskju, beygt til hægri á hringtorginu áður en er komið að Öskju, undir Vesturlandsveginn,beygt til vinstri þegar komið er undir brúna, komið inn á Stórhöfða, ekið áfram út Stórhöfða, beygt til vinstri upp Viðarhöfða og þaðan inn á Vesturlandsveg.  Beygt til hægri inn á Sæbraut við Elliðaár. Beygt til hægri niður Holtaveg og strax til vinstri inn Vatnagarða á móts við Tékkland, staðnæmst þar í 5 mínútur til að „þétta röðina“

Ekið út Vatnagarða, beygt til hægri niður Sundagarða og aftur til vinstri út Klettagarða, beygt til hægri inn á Sæbraut, ekið sem leið liggur fram hjá Hörpu, beygt til hægri út Geirsgötu og út á Granda, beygt til hægri út Grandagarð að Marshallhúsinu og stoppað þar.