Haust og vetrardagská okkar að hefjast.
Nú er farið að líða að hausti og byrjað að kólna úti og dimma á kvöldin. Formlega höfum við því hætt að boða til rúntferða á miðvikudögum og snúum okkur að dagskrá í félagsheimili okkar.
Það er þó ekki útilokað að við boðum til akstursferðar með stuttum fyrirvara ef veður gefur tilefni til.
Við byrjum þetta haustið á rabbkvöldi miðvikudaginn 13. september og ef veður er fallegt eru menn hvattir til að koma á fornbílum sínum. Það verður heitt á könnunni og kaffiveitingar í boði.
Sjáumst hress og gerum okkur glaðan dag þar sem við getum til dæmis rætt verkefni og dagskrá vetrarinns með félögunum í félagsheimili klúbbsins.
Stjórnin