Rabbkvöld í Ögurhvarfi og nýuppgerður bíll í sal.
Við verðum með rabbkvöld miðvikudaginn 6. maí. Það verður heitt á könnunni og kaffiveitingar í boði. Húsið opnar kl. 20:00
Á þessu kvöldi munum við sýna MGB bíl af árgerð 1975 sem var fluttur hingað til lands árið 1986, en hefur ekki komið fyrir sjónir margra fyrr en nú.
Sjáumst hress og gerum okkur glaðan dag með félögunum í félagsheimili klúbbsins.
Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stjórnin