Nú er komið að opnu húsi og myndasýningu. Húsið opnar klukka 20:00.

Félagi okkar Georg Theodórsson er einn af stofnfélögum klúbbsins og mikill áhugamaður um ljósmyndun. Hann hefur í gegnum árin tekið þónokkuð af skemmtilegum myndum af starfi Fornbílaklúbbsins. Hann er búinn að taka saman þónokkuð magn af skemmtilegum myndum úr safni sínu sem hann ætlar að sýna okkur á breiðtjaldinu okkar í Ögurhvarfi. 

Missum ekki af þessu einstaka tækifæri til að sjá þessar stórskemmtilegu myndir. 

Að sjálfsögðu verður kaffi og kaffiveitingar á boðstólnum. 

Allt bílaáhugafólk velkomið. 

Stjórnin.