Kvöldrúntur miðvikudagsins 26. júlí hefst við Smurstöðina í Skógarhlíð. 

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu hjá gömlu smurstöðinni sem er við hliðina á slökkvistöðinni í Skóraghlíð. 

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr um miðborgina og svo ekið í gegnum Kópavog til kaffispjalls upp í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi.

Félagar eru hvattir til að leggja bílum sínu bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Opið verður í félagsheimilinu eftir að bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með. 

Stjórnin