Kvöldrúntur miðvikudagsins 19. júlí hefst við Fjarðarkaup.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu hjá Fjarðarkaup í Hafnarfirði.
Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr sem endar með kaffispjalli upp í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi. Félagar eru hvattir til að leggja bílum sínu bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Opið verður í félagsheimilinu eftir að bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka.
Það er spáð flottu veðri og því um að gera að skella sér í bíltúr með okkur og hitta félagana.
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með.
Stjórnin