Við boðum í kvöldrúnt og kaffispjall, miðvikudaginn 1. júlí, sem hefst við Húsasmiðjuna í Skútuvogi
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Húsasmiðjuna í Skútuvogi.
Við munum svo fara þaðan í bíltúr um miðborgina, sem leiðir okkur svo á endanum upp í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma upp á kaffiveitingar.
Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Opið verður í félagsheimilinu frá klukkan 20:00 fyrir þá sem vilja mæta beint þangað.