Kvöldrúntur miðvikudagsins 9. ágúst hefst við Húsasmiðjuna í Skútuvogi. 

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Húsasmiðjuna í Skútuvogi 16 

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr sem endar í kaffispjalli uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi.

Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Opið verður í félagsheimilinu eftir að bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka. 

Það er spáð fallegu veðri og því tækifæri fyrir skemmtilegan rúnt. Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með. 

Stjórnin