Fréttir af Steðjanúmerum.
Þau tímamót urðu á dögunum að félagar í númeranefnd Fornbílaklúbbs Íslands smíðuðu tvöþúsund og finnhundraðasta steðjanúmerið sem Fornbílaklúbburinn hefur smíðar fyrir fornbíla og er nú heildarfjöldi smíðaðra númerasetta kominn í 2.511 sett.
Það var í árslok 2001 eða fyrir tæpum 25 árum síðan sem samþykkt var að leyfa svokölluð fornmerki á gömul ökutæki, en þá höfður stjórnarliðar í Fornbílaklúbbi Íslands og þá aðalega fyrrum formaður hans, Örn Sigurðson, lengi barist fyrir því að fá að halda í sögulegt útlit bíla og annara ökutækja með því að leyft yrði að setja númer í samræmi við aldur og sögu á fornökutæki. Í raun hafði þessi báratta að eitthverju leiti byrjað fljótlega eftir að fastnúmerakerfið var tekið í notkun í ársbyrjun 1989, þó að baráttan hafi harnað og aukist eftir því sem lengra á leið. Einknúmerakerfið og innleiðing þess í júní 1996 varð mönnum enn meiri hvatning til bráttunnar, en það var sú breyting á bifreiðaskráningum sem á endanum gerði þetta mögulegt. Eitthvað var nefnilega orðið um það að fornbílamenn fengju sér nefnilega bara einkanúmer og settu svo fornmerki eða steðjanúmer með sömu áletrun á bílinn í staðinn. Það var því orði bara tímabært að mati fornbílamanna að þetta kerfi yrði bara innleitt að erlendri fyrirmynd og eins og áður sagði fór frumvarp þess efnis í gegnum Alþingi á haustþinginu 2001 og reglugerðin og leyfið gefið út í árslok sama ár.
Það var nefnilega þannig að forsjálum félögum og stjórnarliðum í Fornbílaklúbbnum hafði nefnilega tekist að bjarga gömlu steðjanúmerastönsunum og stafaþvottavélinni til að varðveita þessar sögulegu minjar og hugsanlega nota þó síðar yrði. Því var megnið af tækunum til sem þurfti til smíðinnar að frátalinni stóru stanspressunni sem Steðji hafði notað við smíðina, en klúbburinn hafði ekki átt nægilegt fé til að kaupa hana og alls ekki aðstöðu til að geyma hana sökum stærðar. Stansana og þvottavélaina fékk klúbburinn hinsvegar gefins, eða allavega fyrir slikk, því það var talið vera næstum því með öllu verðlaust dót. Klúbburinn festi kaup á 30 tonna vökvapressu er leyfið var komið til að fara af stað með þessa smíði, pressu sem hefur verið notuð síðan, en þrátt fyrir að vera kanski full lítil á köflum að þá hefur hún dugað þokkalega vel og klárað með áhugaverðum ágætum öll þessi númerasett.
Smíði svokallaðra steðjanúmera á vegu klúbbsins hófst svo í janúar 2002 og voru það núverandi formaður Fornbílaklúbbsins, Rúnar Sigurjónsson, þáverandi formaður, Örn Sigurðsson og þáverandi gjaldkeri klúbbsins, Rudolf Kristinsson sem hófu að smíða þessar plötur og smíðuðu um það bil fyrstu 1000 settin. Kerfið var þá þannig að Örn sá um allt bókhald og aðstoðaði svo Rúnar við að þrykkja stafina, en svo málaði Rudof númerin. Siðar hafa nokkrir aðrir komið að smíðinni m.a. Kjartan Friðgeirsson, Ólafur Björgvinsson, Þorgeir Kjartansson, Andri Þórsson og svo Bjarni Þorgilsson, en hann var um þónokkurt skeið einn í nefndinni og sá um þetta allat saman, svo dæmi séu tekin. Gjaldkerar klúbbsins á undanförnum 25 árum hafa líka haft að hluta veg og vanda af þessari smíði með því að skrá og móttaka greiðslur og sjá til þess að þau mál séu eins og best verður á kosið.
Núverandi númerenefnd tók við keflinu í júlí 2024 og er skipuð þeim Rúnari Sigurjónssyni (já hann aftur), Bjarna Benediktssyni, Jóni Hermanni Sigurjónssyni og Stefáni Erni Stefánssyni. Nýlega bættist svo við liðsauki er Margrét Helga Aðalsteinsdóttir bættis í hóp númerasmiða.
Þegar lagt var að stað í þessa smíði á sínum tíma voru í gangi misjafnar spár um hversu vinsælt þetta yrði að fá sér svona fornnúmer á bílinn sinn og spáðu sumir því að smíðin yrði kanski um 20-25 sett í byrjun og svo 5 sett á ári eftir það. Sú svartsýnisspá rættist heldur betur ekki því fyrsta árið voru smíðuð 142 númerasett og eins og tölunar gefa til kynna er meðaltal smíðinnar á þessum að verða 25 árum því orðin rúmlega 100 sett á ári nú þegar þessi 2.511 sett hafa lifið dagsins ljós. Það hefur þó farið svo að undanfarin ár hefur örlítið dregið úr númerapöntunum, en þó hefur smíðin verið um 60-70 sett á ári. Teljum við það þó samt þónokkuð gott þar sem að bílarnir sem meiga bera steðjanúmer eru að verða 40 ára gamlir eftir 2 ár.
Að þessu tilefni langar okkur að bend á að nú fer hver að verða síðastur að panta sér númer fyrir sumarið, en síðasti smíðadagur fyrir sumarlokun verður í byrjun júní og verða því allar pantanir að vera koman í síðasta lagi og greiddar fyrir 31 maí n.k. Það er því ekki úr vegi að láta slag standa og panta sér draumanúmerið á fornbílinn, en ferlið í því má kynna sér með því að fara á þessa síðu. Panta númer – Fornbílaklúbbur Íslands
Einnig langar okkur á minna á innslag um bínúmer sem kom í þættinum Landanum á RUV í mars 2021 þar sem meðal annars er rætt við Rúnar Sigurjónsson. Ekki leyfilegt að keyra um með særandi bílnúmer – RÚV.is