Já þá er komið að fyrsta kvöldrúnti sumarsins, miðvikudaginn 7. maí, sem hefst við Tækniskólann (Sjómannaskólann) við Háteigsveg í Reykjavík. 

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Tækniskólann á Háteigsvegi (áður Sjómannaskólinn)

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr um miðborg Reykjavíkur, þaðan sem leið okkar liggur uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma á fornbílum upp á kaffiveitingar. 

Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega ísbíltúr.  

Stjórnin