Já þá er komið að fyrsta kvöldrúnti sumarsins, miðvikudaginn 15. maí, sem hefst við Háskólann í Reykjavík.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við hliðina á HR í Nauthólsvík (Menntavegi 1) (Sjá mynd)
Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr vestur í bæ og út á Granda, þaðan sem leið okkar liggur uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma á fornbílum upp á ís frá nágrönnum okkar í Skalla.
Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka.
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega ísbíltúr.
Stjórnin