Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00. 

Á bíókvöldi númer 7 í röðinni og jafnframt því síðasta þennan veturinn munum við taka til sýningar kvikmyndina Carry on Doctor frá árinu 1967, en hún er orginal bresk kómedía frá Carry on leikhópnum sem gerði allnokkrar grínmyndir á sínum tíma. Hér er á grátbroslegan hátt gert grín að spítalalífi samtímans, en þessi mynd er fyrir löngu orðin klassísk í sinni röð. 

Þetta er mynd sem engin aðdáandi að góðu gríni og hlátri ætti að láta hana fram hjá sér fara.  

Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 94  mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir. 

Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi. 

Stikla myndarinnar: Carry On Doctor (1967) – Trailer

Myndin er því miður ekki með íslenskum texta. 

Stjórnin