Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00.
Á síðasta bíókvöldi okkar þennan veturinn munum við taka til sýningar stórmyndina Walk the Line frá árinu 2005 með stórleikurunum Joaquin Phoenix og Reese Witherspoon í aðalhlutverkum. Þess má geta að Reese Witherspoon hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni.
Myndin fjallar um ævi Johnny Cash. Í myndinni er fylgst með lífshlaupi þessa magnaða tónlistamanns, fyrstu tónleikaferðum með stjörnum eins og Jerry Lee Lewis, Carl Perkins, Roy Orbison, Elvis Presley og síðast en ekki síst June Carter. Við fyrlgjumst líka með baráttunni við áfengi og eiturlyf sem settu sannarlega svip sinn á ævi Johnny Cash og fjölskyldulíf hans.
Leikmynd myndarinnar er einstök og mikið af flottum bílum má sjá í myndinni. Þetta er stórkostleg mynd sem skilur margt eftir sig og engin má missa af. Leikarar myndarinnar fara með stórleik og ná að túlka söguna og tíðarandann á stórkostlegan hátt. Ekki skemmir svo fyrir að í myndinni er gríðalega mikið að frábærri tónlist og þar koma fram öll bestu lögin frá mögnuðum ferli Johnny Cash.
Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 130 mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir.
Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi.
Stikla myndarinnar: Walk the Line (2005) Trailer #1 | Movieclips Classic Trailers
Myndin er sýnd hjá okkur með íslenskum texta.
Stjórnin