Kæru félagar. Við endurvekjum bílamessuna sem naut svo mikilla vinsælda fyrir nokkrum árum.
Að þessu sinni höfum við fengið Séra Bjarna Þór Bjarnason sóknarprest í Seltjarnarneskirkju til að halda messuna, en honum til halds og trausts verður félagi okkar Séra Gunnar Sigurjónsson sem mun flytja okkur hugvekju af sinni alkunnu snilld. Einnig mun formaður okkar Rúnar Sigurjónsson segja nokkur orð.
Tónlist verður að vanda af bestu gerð, enda höfum við að sjáfsögðu fengið hann Einar Clausen til að sjá um sönginn og mun Friðrik Vignir Stefánsson, organisti kirkjunnar sjá um undirleik.
Við að sjálfsögðu mætum á okkar fallegu fornbílum og stillum þeim upp við kirkjuna, en messan hefst kl. 14:00.
Boðið verður upp á veitingar í safnaðarheimilii kirkjunnar að lokinni athöfn.
Allt bílaáhugafólk velkomnir.