Einn af elstu félögum Fornbílaklúbbsins, Helgi Magnússon, er fallinn frá.
Helgi fæddist árið 1946 og var ný orðinn áttræður þegar hann lést 21. maí sl. Hann gekk til liðs við Fornbílaklúbbinn fljótlega eftir stofnun hans árið 1977 og tók að sér ritstjórn Fornbílsins, þáverandi fréttabréfs klúbbsins. Helgi starfaði lengi við bókaútgáfu og ritstýrði meðal annars bókinni Bílar á Íslandi 1904-1922 sem kom út árið 1983. Helgi var hæglætismaður sem lét lítið á sér bera, skapgóður og seinþreyttur til vandræða. Helgi var um árabil fundarstjóri á mörgum af aðalfundum Fornbílaklúbbsins og vakti ávalt athyggli fyrir sérstæða en ákaflega vandaða fundarstjórn þar sem hæglæti hans var mjög skemmtilega áberandi. Margir muna eflaust eftir áralöngu samstarfi hans og Hinriks Thorarensen, en saman áttu þeir fjölmarga bíla, meðal annars Ford-slökkvibíl, Volvo-símabíl og Chevrolet-mjólkurbíl. Þeim síðastnefnda björguðu þeir frá eyðileggingu og gerðu upp í samvinnu við Mjólkurbú Flóamanna, en mjólkurbíllinn er núna á Samgönguminjasafninu í Skógum ásamt símabílnum og öðrum merkum gripum úr safni þeirra félaga, sem nú hafa sameinast í sumarlandinu. Helga Magnússonsar minnumst við sem tryggum félaga sem lét sig áhugamál okkar miklu varða og gaf af stórum hluta ævi sinnar til varðveislu gamalla bíla.
Tíðindi þessi eru stjórn Fornbílaklúbbsins afar þungbær þar sem Helgi hafði s.l. vetur lagt á ráðin með að stýra útgáfu bókar um sögu Fornbílaklúbbsins sem til stóð að gefa út á næsta ári. Var því ýmis forvinna og öflun ganga hafin til verksins af hálfu Helga. Ljóst er að breytingar verða augljóslega á þeim áformum.
Stjórn Fornbílaklúbbs Íslands vottar ættingjum og vinum Helga sína dýpstu samúð.