Kæru félagar.
Aðalfundur 2022 verður haldinn á morgun miðvikudagskvöldið 25. maí kl 20:00 í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi 2 Kópavogi.
Húsið opnar kl 18:30. Fyrir fundinn verður boðið uppá veitingar í samstarfi við Skalla gegn framvísun félagsskírteinis.
Dagskrá fundar:
1. Fundur settur, skipan fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar og nefnda
3. Ársreikningur 2021 lagður fram og borinn upp til samþykktar
4. Stjórnarkjör
a) Kosning þriggja stjórnarmanna til 2ja ára
b) Kosning tveggja varamanna til eins árs
5. Kosning skoðunarmanna reikninga
6. Kjörnefnd kynnir úrslit kosninga
7. Árgjald, umræður og ákvarðanataka
8. Önnur mál
9. Fundargerð lesin
10. Fundi slitið
Húsið opnar kl. 18.30 og hefst fundurinn kl. 20.00 og eru félagar hvattir til að koma akandi á fornbílum. Aðgangur takmarkast við þá sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2022 og hafa þeir einir atkvæðisrétt sem greitt hafa þremur vikum fyrir fundinn. Munið félagsskírteinin.