Stjórn Fornbílaklúbbsins leitar að viðburðum fyrir opin hús. 

Ef þú (eða einhver sem þú þekkir) átt eða veist um eitthvað efni til að sýna félögum okkar á opnu húsi eins og til dæmis, myndir af bílasýningum erlendis, gamlar bíla- eða tækjaljósmyndir, kynningarefni á eitthverju fornbílatengdu, villt kynna eitthverja starfsemi eða tækjatengd félagasamtök og starfsemi þeirra, nú eða bara segja okkur eitthverjar mátulega trúlegar sögur úr fortíðinni sem okkar félagsmenn hefðu gagn og/eða gaman af, að þá langar okkur að heyra frá þér. 

Endilega sendu okkur línu á formadur@fornbíll.is eða hringdu í síma 895-8195 og láttu okkur vita hvað þú getur boðið okkur upp á. Það eru nefnilega bara mjög miklar líkur á að við tökum þá bara frá heilt kvöld fyrir viðburðinn þinn til að skemmta okkar félagsfólki. 

Við getum líka tekið á móti alls konar efni og séð um sýningu á því, eða hjálpað til við að gera efni klárt til birtingar eða veitt hverskonar aðstoð við sýningu eða kynningu efnisins. Ekki hika við að hafa samband. 

Hlökkum til að heyra frá þeim sem hafa eitthvað til að sýna okkur. 

Stjórnin.