Við ætlum í dagsferð um Suðurnes í svona ,,Njóta saman ferðalag“ laugardaginn 12. september sem við köllum að þessu sinni ,,Suðurnes og út að borða saman“. 

Við munum ferðast um Suðurnes og koma við á áhugaverðum stöðum og skoða nokkur söfn. Við munum svo fá okkur svo veglegan síðdegissnæðing á heimleiðinni. 

Veitingakostnaður í síðdegisverði er niðurgreitt af Fornbílaklúbbnum fyrir þá félgsmenn sem fara með. 

Áætluð ferðatilhögun:  Lagt af stað frá Reykjavík í hópakstri  frá félagsheimilinu í Ögurhvarfi um kl 10:00 (félagsheimilið opnar um kl 9:15). Við erum ennþá að fullmóta leiðina sem ekin verður, en hún verður kynnt síðar. Við munum svo stoppa á veitingahúsi og fá okkur að borða, en heimferð er svo frjáls að síðdegisverðinum loknum. 

Matseðill kvöldverðar verður kynntur fljótlega og verður fólki sendur póstur eða hringt til að þið fáið að velja af matseðli þegar nær dregur:

Mögulega er hámark er á gestafjölda í matinn og því um að gera að panta strax.

Ferðakostnaður sem greiðist af þeim sem fara með í ferðina er sem hér segir. 

  1. Kvöldverður fyrir félagsmann kostar 2.000,- kr og getur hver félagsmaður tekið með sér einn gest á sama verði. 
  2. Kvöldverður fyrir aðra gesti sem koma með félagsmanni kostar 3.000,- kr. og verð fyrir börn yngri en 12 ára sem koma með félagsmanni er 1.500,-
  3. Utanfélagsmenn geta komið með, en greiða þá fyrir aðgang að söfnum á staðnum og veitingarnar sjálfir á veitingastaðnum samkvæmt hans gjaldskrá. 

Skráningu í ferðina skal senda í tölvupósti á formaður@fornbill.is eða í síma 895-8195  og er skráningarfrestur til kl 24:00 mánudaginn 7. september n.k.

Titill tölvupósts skal vera: Dagsferð um Suðurnes. 

Eftirfarandi þarf að koma fram. 

  1. Nafn félagsmanns og gott að fá félaganúmer (ef þú mannst eða finnur númerið)
  2. Hversu margir og hverjir verða í matnum. (aldur barna sem ferðast með þarf að koma fram)

Endilega tökum þátt og njótum þess að skoða þetta fallega safn og fara út að borða með okkar.  

Stjórnin