Já þá er komið að kvöldrúnti og bókarkynningu, miðvikudaginn 19. ágúst, sem hefst við Perluna.

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á neðra palninu við Perluna í Öskjuhlíð.

Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr þar sem leið okkar liggur svo uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma upp á kaffiveitingar. 

Þetta kvöld mun hann Njáll Gunnlaugsson kynna fyrir okkur nýjustu bók sína, Evrópsku járnfákarnir, Saga evrópskra mótorhjóla á Íslandi, en hún var að koma sjóðheit úr prentun. Eins og Njáli er einum lagið verður gaman á þessari kynningu og því má enginn missa af þessu. 

Gera má ráð fyrir miklum bílafjölda og eru félagar okkar og aðrir gestir sem geta hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla, sem og hrefihamlaða og þá sem eiga erfitt með að ganga. 

Opið verður í félagsheimilinu frá kl 20:00. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með.

Stjórnin