Þjóðhátíðarakstur og sýning Fornbílaklúbbsins á Árbæjarsafni miðvikudaginn 17. júní.
Við ætlum að hittast á um klukkan 11:00 á planinu við Háskólann í Reykjavík, Menntavegi 1 í Nauthólsvík en þaðan verður ekið í hópakstri og lögreglufylgd um miðbæinn rétt eftir hádegi.
Að þessu sinni er hátíðaraksturinn í samstarfi við Krúser, félag áhugamanna um akstur. Ekið verður í lögreglufylgd frá HR inn Snorrabraut og niður Hverfisgötu.
Krúser klúbburinn munu halda sýningu á Tjarnarbrúnni í miðbæ Reykjavíkur, en Fornbílaklúbburinn boðar til sýningar í Árbæjarsafni. Á planinu við HR velja menn hvort þeir vilja fara á sýninguna á brúnni eða sýninguna í Árbæ. Hópurinn sem ætlar á brúnna við Tjörnina aka á undan í röðinni og þeir sem ætla í Árbæ koma á eftir. Þegar komið er niður Hverfisgötu að Lækjargötu fara þeir sem eru á leið inn á Tjarnarbúr til vinstri, en þeir sem á eftir koma og eru að fara upp í Árbæ beygja til hægri út Kalkhofsveg og aka Sæbraut og Ártúnshöfða beina leið upp í Árbæjarsafn. Sýningin í Árbæ mun líklega standa lengur en sú sem verður á Tjarnarbrúnni og því er þeim sem eru að fara af brúnni velkomið að koma að lokinni þeirri sýningu upp í Árbæ og bætast í hóp þeirra sem þar eru fyrir.
Áætlað er að þeir sem aka bent upp í Árbæ muni aka inn á sýningarsvæðið þar uppfrá um kl 13:00.
Óskað er eftir að viðvera ökutækja á sýningarstaðnum sé til klukkan 17:00 eða sem næst því og kostur er.
Sýningin verður auglýst sérstaklega á Facebook og við vonumst því til að sjá sem allra flesta. Við áréttum að allt bílaáhugafólk er velkomið og þeir sem koma á fornbíl munu fá að aka með í hátíðarakstrinu og taka þátt í sýningum klúbbanna að vild.
Endilega bjóðum sem flestum á þennan viðburð. (12) Fornbílasýning í Árbæjarsafni á 17. júní | Facebook
Facebooksíða Krúser: (2) Facebook
Stjórnin.