Miðvikudaginn 3 júní förum við í fræðsluferð að skoða Hvalveiðiskip

Já við ætlum að heimsækja skipið Hval 9 sem liggur ásamt Hval 8 við bryggju í Reykjavíkurhöfn, nánar tiltekið að Ægisgarði.

Félagi okkar í Fornbílaklúbbnum, hann Halldór Olesen, í samstarfi við annan félaga sinn munu taka á móti okkur og sjá til þess að við fáum leiðsögn um skipið. 

Mæting er í boganum fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands við Sæmundargötu kl 19:00, en þaðan verður ekið skömmu síðar í halarófu sem endar að Ægisgarði. 

Hér er einstakt og sjaldgæft tækifæri til að fá að skoða þetta gamla og sögufræga skip og hvetjum við fólk til að mæta og láta þetta ekki framhjá sér fara.

Til fróðleiks að þá er Hvalur 9 þriðja elsta skip með haffærisskýrteini á Íslandi, smíðaður 1952, en það næstelsta er Hvalur 8 sem smíðaður var 1948. Elsta skipið sem hefur haft haffærisskírteini á Íslandi er hinsvegar eikarbáturinn Þorsteinn GK 15. Báturinn var smíðaður í Falkenberg í Svíþjóð árið 1946. 

Boðið verður upp á kaffiveitingar, en það er þó svolítið þröngt í skipinu og því mögulegt að það þurfi eitthvað að skiptast á að vera í kaffinu, sem og að leiðsögninni um skipið verður einnig skipt í hópa. 

Við hvetjum vissulega alla sem geta að koma á fornbílum til að vekja á okkur athyggli á staðnum þar sem oft eru túristar og aðrir ferðamenn á vappi um svæðið. 

Lokað er í Ögurhvarfi þennan miðvikudag. 

Stjórnin