Já nú er vorið komið og við byrjum á þéttri dagskrá næstu daga.
- Þriðjudaginn 12. maí verður aukaopnun milli klukkan 20:00 og 21:30 í bílgeymslum okkar að Esjumelum, og er það gert vegna skoðunardagsins sem að þessu sinni er 16. maí og er auglýstur hér neðar.
- Miðvikudaginn 13. maí er svo síðasta rabbkvöld vetrarinns í Ögurhvarfi og opnar húsið kl 20:00. Við munum sennilega sýna eitthvað skemmtilegt á skjanum að þessu sinni.
- Fimmtudaginn 14. maí, sem er uppstigningardagur, erum við svo að fara að endurvekja Bílamessuna sem var vinsæl hér fyrir nokkrum árum. Hún verður að þessu sinni haldin í Seltjarnarnesskirkju og hefst messan stundvíslega klukkan 14:00
- Laugardaginn 16. maí er svo komið að skoðunardeginum okkar í samstarfi við Frumherja í Dalshrauni í Hafnarfirði og verður þar boðið upp á skoðun fyrir 5.900,- krónur og hefst hún klukkan 9:00 um morguninn.
- Miðvikudaginn 20. maí er svo aðalfundur klúbbsins haldinn í Ögurhvarfi og húsið klukkan 18:30 þar sem við byrjum á því að bjóða upp á veitingar, en sjálfur fundurinn hefst kl 20:00.
Gott í bili og meira síðar.
Eins og sjá má byrjum við á þéttri dagskrá og vonum að allir sjái sér fært að mæta á sem flesta að viðburðum okkar í sumar. Okkur hlakkar til að sjá ykkur öll.
Stjórnin