Rabbkvöld í Ögurhvarfi og nýr fornbíll í sal.
Við verðum með rabbkvöld miðvikudaginn 18. febrúar. Það verður heitt á könnunni og kaffiveitingar í boði. Húsið opnar kl. 20:00
Við höfum fengið í salinn Humber Spectre bíl árgerð 1964 sem er í eigu Ingimundar Benediktssonar. Bíllinn er nýlega innfluttur frá Svíþjóð og þó svo að hann Ingimundur hafi komið í akstursferðir með okkur á bílnum er gaman að skoða þennan merkilega bíl í návígi.
Sjáumst hress og gerum okkur glaðan dag með félögunum í félagsheimili klúbbsins.
Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stjórnin