Það verður opið hús hjá okkur í Ögurhvarfi 11. febrúar. Húsið opnar kl 20:00
Á þessu kvöldi ætlar Njáll Gunnlaugsson, ökukennari, rithöfundur og mótorhjólamaður sem einnig er forsprakki Fornhjólafélagsins, að renna í gegnum nokkrar myndir úr myndasafni sínu af gömlum og merkilegum vélhjólum og sýna okkur myndir úr ýmsum áttum. Fáir eru eins fróðir um gömul vélhjól og Njáll og á hann í fórum sýnum margar merkilegar myndir sem gaman er að sjá.
Hefðbundnar kaffiveitingar verða í boði. Ekki missa af þessum stórskemmtilegu myndum.
Endilega fjölmennum og eigum gott kvöld með félögunum.
Allt bíla- og vélhjólaáhugafólk velkomið.
Ef bílar gesta eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Stjórnin