Rabbkvöld í Ögurhvarfi og nýuppgerður bíll í sal.
Við verðum með rabbkvöld miðvikudaginn 21. janúar. Það verður heitt á könnunni og kaffiveitingar í boði. Húsið opnar kl. 20:00
Á þessu kvöldi munum við frumsýna Toyota Corolla bíl sem var að koma úr áralangri uppgerð og er ákaflega glæsilegur.
Sjáumst hress og gerum okkur glaðan dag með félögunum í félagsheimili klúbbsins.
Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stjórnin