Við ætlum í dagsferð á Skógum í svona ,,Njóta saman ferðalag“ laugardaginn 20. september sem við köllum að þessu sinni ,,Skógar og út að borða saman“.
Á Skógum munum við vissulega fara á safnið og fá leiðsögn um hluta þess. Við munum svo fá okkur svo veglegan síðdegissnæðing á heimleiðinni.
Veitingakostnaður í síðdegisverði er niðurgreitt af Fornbílaklúbbnum fyrir þá félgsmenn sem fara með.
Áætluð ferðatilhögun: Lagt af stað frá Reykjavík í hópakstri frá félagsheimilinu í Ögurhvarfi um kl 10:00 (félagsheimilið opnar um kl 9:15). Áætlað er að mæta á safnið á Skógum um kl 12:30. Við eigum svo pantaða leiðsögn um hluta safnsins klukkan 13:30. áætlað er að við förum frá safninu eigi síðar en klukkan 15:00 því klukkan 17:00 mætum við á Hótel Selfoss þar sem við munum borða saman góðan mat. Heimferð er svo frjáls að síðdegisverðinum loknum.
Matseðill kvöldverðar verður sem hér segir:
Forréttur: Villisveppasúpa
Aðalréttur: Val um Nautakinn með trufflu kartöflumús, gulrótum, hnetum og blóðbergsgljáa eða Þorskur með kremuðu byggi, sultuðum tómötum, jarðskokkum, gulrótum og choron
Mögulega er hámark er á gestafjölda í matinn og því um að gera að panta strax.
Ferðakostnður sem greiðist af þeim sem fara með í ferðina er sem hér segir.
- Veglegur kvöldverður fyrir félagsmann kostar 2.000,- kr og getur hver félagsmaður tekið með sér einn gest á sama verði.
- Veglegur kvöldverður fyrir aðra gesti sem koma með félagsmanni kostar 3.000,- kr. og verð fyrir börn yngri en 12 ára sem koma með félagsmanni er 1.500,-
- Utanfélagsmenn geta komið með, en greiða þá fyrir aðgang að safninu á staðnum og veitingarnar sjálfir á veitingastaðnum samkvæmt hans gjaldskrá.
- Á Skógarsafni greiðir hver og einn fyrir sig og sína (við fáum hópaafslátt ef þáttaka er næg).
Skráningu í ferðina skal senda í tölvupósti á formaður@fornbill.is (eða í síma 895-8195 EKKI HÆGT AÐ HRINGJA SUNNUDAGINN 14. SEPT.) og er skráningarfrestur til kl 24:00 mánudaginn 15. september n.k.
Titill tölvupósts skal vera: Dagsferð að Skógum.
Eftirfarandi þarf að koma fram.
- Nafn félagsmanns og félaganúmer (ef þú mannst eða finnur númerið)
- Hversu margir og hverjir verða í matnum. (aldur barna sem ferðast með þarf að koma fram)
- Hvaða aðalrétt ferðalangar velja, naut eða þorsk.
Endilega tökum þátt og njótum þess að skoða þetta fallega safn og fara út að borða með okkar.
Stjórnin