Við boðum í kvöldrúnt og kaffispjall, miðvikudaginn 30. júlí, sem hefst við Kjarvalsstaði. 

Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Kjarvalsstaði, en þeir eru við Flókagötu 24.  

Við munum svo fara þaðan í bíltúr um miðborgina, sem leiðir okkur svo á endanum upp í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma upp á kaffiveitingar. 

Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla. 

Opið verður í félagsheimilinu frá klukkan 20:00 fyrir þá sem vilja mæta beint þangað. 

Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan kvöldbíltúr.  

Stjórnin