Já þá er kvöldrúnti og kaffispjalli, miðvikudaginn 14. maí, sem hefst við Húsasmiðjuna í Grafarholti í Reykjavík.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Húsasmiðjuna að Vínlandsleið 1 í Grafarholtinu.
Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr um efri byggðir Reykjavíkur, þaðan sem leið okkar liggur uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma á fornbílum upp á kaffiveitingar.
Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Opið verður í félagsheimilinu eftir bíltúrinn sem endar þar um kl 20:30 -20:45 sirka.
Endilega fjölmennum og tökum góða skapið með í þennan skemmtilega ísbíltúr.
Stjórnin