Mætt eru: Rúnar, Margrét, Jón, Einar, Ólafur, Jóhann og Tinni.
Fram lögð tillaga af ársreikningi. Ársreikningur ræddur þónokkuð.
Góugleðin. Halda áfram með hana. Fá grillvagninn aftur, getum fengið sama barþjón og
síðast.
Tillaga sett fram um að klára framkvæmdir með barborð fyrir góugleðina.
Aðalfundurinn verður 20 maí. Rædd sú hugmynd að hafa hann í beinu streymi.
Beiðni frá Smáralind rædd, óskað eftir því að fá fornbíla til að sýna í smáralindinni.
Fagráð um umferð kom með hugmynd um að fara af stað með herferð “ónáðið aðeins
með augunum” útfærsla á herferð gegn notkun síma undir stýri.
Kom tölvupóstur frá lögfræðingum sem sjá um slit á félaginu um sögu bílsins. Óskað eftir
að Fornbílaklúbburinn afsali sér sínum hlut, 150.000 án kostnaðar. Samþykkt að gera það af
öllum viðstöddum.
Kjörnefnd: Þorgeir, Jón og Gunnar eru tilbúnir til að sjá um framkvæmdina að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Vantar fleira fólk í stjórn.
Rúnar óskar eftir aðstoð við að fara í gegnum tölvupóstana. Margrét býður sig fram í það.
Umræða um að fá fyrirtækið sem sér um rafrænuskítreinin í samstarf með
þróunarverkefni.
Dagskráin næstu misseri. Vantar fókk til að koma og vera með einhver
miðvikudagskvöld.
Umræða um vörugjöldin, Rúnar fór yfir það sem misfórst í meðferð þingsins á
frumvarpinu.
Ósk frá Margrétio g Stefaníu að farga bókhaldsgögnum sem eru eldri en 7 ára. Samþykkt
af öllum viðstöddum.
Ekkert fleira á dagskrá og fundi slitið.