Já þá er komið að síðasta kvöldrúntinum og kaffispjalli þetta sumarið, miðvikudaginn 17. september, sem hefst við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Við ætlum að hittast klukkan 19:30 á palninu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, en hann er við Austurberg.
Farið verður þaðan skömmu síðar í bíltúr um Breiðholtið sem á endanum leiðir okkar uppi í félagsheimilinu okkar í Ögurhvarfi þar sem klúbburinn mun bjóða þeim sem þangað koma upp á kaffiveitingar.
Ef bílar eru margir eru félagar okkar hvattir til að leggja bílum sínum bak við félagsheimilið okkar við komuna þangað af tillitssemi við nágranna okkar í Skalla.
Opið verður í félagsheimilinu frá kl 20:00.
Veðurspá er falleg og því um að gera að fjölmenna og taka góða skapið með.
Stjórnin