Þá er komið að bíókvöldi í Ögurhvarfi. Húsið opnar klukkan 20:00. 

Á bíókvöldi númer 4 í röðinni þennan veturinn munum við taka til sýningar myndina A Little Trip To Heaven frá árinu 2005 með þeim Forest Whitaker, Juliu Stiles og Jeremy Renner í aðalhlutverkum. 

Myndinni, sem á að gerast árið 1985, er leikstýrt af Baltasar Kormáki og framleiðandi hennar var Sigurjón Sighvatsson. Hún var fyrir vikið að miklu leiti tekin á Íslandi og félagar í Fornbílaklúbbi Ísland sáu á sínum tíma um að útvega ýmis ökutæki og jafnvel leika í eitthverjum aukahlutverkum í myndinni. Tónlistin í myndinni er eftir Mugison. 

Myndin fjallar um mann með vafasama fortíð sem deyr í bílslysi, en í ljós kemur að hann er líftryggður fyrir himinháa upphæð. Starfsmaður tryggingafélagsins er sendur vetvang sem og á sveitabýli systir mannsins og eiginmanns hennar sem eru bótaþegar, til að rannsaka málið. Við tekur spennandi og óvænt atburðarrás.  

Sýning myndarinnar hefst um klukkan 20:15 og er sýningartími hennar um 86  mínútur. Boðið verður upp á popp og gos, sem og kaffi fyrir þá sem það vilja. Gert verður stutt hlé ef þurfa þykir. 

Endilega fjölmennum og eigum gott bíókvöld með félögunum í Ögurhvarfi. 

Stikla myndarinnar: A Little Trip to Heaven – trailer – IFFR 2006 – YouTube

Myndin er sýnd hjá okkur með íslenskum texta. 

Stjórnin