Rabbkvöld í Ögurhvarfi og nýr fornbíll í sal.
Við verðum með rabbkvöld miðvikudaginn 18. febrúar. Það verður heitt á könnunni og kaffiveitingar í boði. Húsið opnar kl. 20:00
Við höfum fengið til frumsýningar í salnum okkar Lada 2106 bifreið, en hér í eina tíð gengu þessir bílar undir nafninu Lada 1600 hér á landi þó þetta eintak hafi heitið 1500 S á sínu markaðssvæði á sínum tíma.
Bíllinn var að koma hingað til lands innfluttur frá Búlgaríu, og er svo gott sem eins og nýr úr kassanum eins og það hefur stundum verið kallað, en eigandi bílsins er Gunnar Steindór Guðmundsson. Hér er sjón klárlega sögu ríkari. .
Sjáumst hress og gerum okkur glaðan dag með félögunum í félagsheimili klúbbsins.
Allt bílaáhugafólk velkomið.
Stjórnin